dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

mánudagur, febrúar 06, 2006

Ég get alveg sagt þér hvernig...

Ég verð bara að deila með ykkur kommenti frá syni mínum. Þannig er að um helgina hefur verið svolítið eppisót að koma sumum í háttinn. Þetta hefur kostað mikið þras og þvarg. Í gærkvöldi lítur drengurinn á mig, svolítið svona bessewisser á svipinn. Segir svo: mamma, ég get alveg sagt þér hvernig þú getur haft betri stjórn á mér. NÚ?
Já, í fyrsta lagi þá þyrftirðu að finna þér mann og svo þarftu bara að vera strangari og hafa meiri aga á mér! EINMITT!!!!??? Í kvöld átti svo að draga allt til baka því honum fannst ég aðeins OF ströng. Hann var nú ekki að meina þetta svona bókstaflega sko. Hvað getur maður sagt?

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hehehe kannski hann hafi fyrst viljað að þú fyndir þér mann og koma svo með mikla agann :)

3:58 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Algjörlega frábært hjá honum.... úff hvað ég held það yrði samt erfitt fyrir hann ef ske kynni að hann yrði ekki lengur húsbóndinn á heimilinu...hehehehehe ;o)

11:55 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home