dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

sunnudagur, apríl 15, 2007

Hélduð þið jafnvel að ég hefði ekki ratað heim úr landi drottningar og heldri manna? Því miður...þá fann ég réttu flugvélina og kom sjálfri mér og unga herramanninum heim á leið....langaði samt mest til þess að snúa við og taka næstu vél eitthvert annað en KEF, þegar við börðumst með töskurnar frá flugstöðinni að bílnum sem geymdur var í víðáttunni hjá Securitas...Þvílíka slagveðrið sem tók á móti okkur...brr....úr +20 og sól í London....
Annars var ferðin ljúf í alla staði þó að við söknuðum strákanna í Hastings...en það verður að bíða betri tíma...Myndirnar eru í bið en ég set þær á Flickr við fyrsta tækifæri...
Af frekari ferðalögum...nú erum við búin að bóka til Danmerkur í sumarhús með familí...og M og BB....taka tvö í rólegheitum....þrjár vikur i slóri....
Svo er flökkufíkillinn að hugsa um að sleppa Þjóðhátíð og fara í staðinn til NYC og vera hjá Brian og ferðast jafnvel eitthvað um Ameríkuna....kannski kíkja á flugstjórana í Naples og sitthvað annað....Það kemur í ljós fljótlega..Það gæti hugsast að það yrði pláss fyrir einn í viðbót í planinu þannig að áhugasamir skulu bara spyrja og koma með hugmyndir....hehe...jeij...
Lífið eftir páskana hefur bara verið nokkuð áfallalaust þrátt fyrir smá viðbrigði að vera hættur í fríi....en þetta er mjúk lending þar sem fimmtudagsfríin og 1.mai fylgja þessum árstíma....
Í dag var svo frændi minn hann Þórhallur fermdur....pilturinn tók á móti gestum með miklum glæsibrag og er maður hálf syfjaður eftir kræsingarnar....mmmm....og svo held ég að ég sé ástfangin....en það verður víst ekkert úr því....ástin mín er með svart hár og brún augu og fjóra fætur. Tveggja mánaða gömul labradortík....mmmm...bara bjútí...vá hvað mig langaði að stela henni og eiga....alveg eins og mig langar stundum að stela litlum börnum....;-)

En jæja, nóg í bili. Lifið heil!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ohhh ástfangin... ég fór á gleðiflug og lýsingin byrjaði sko nokkuð vel ,svart hár og brún augu :) en þegar bætast við 2 fætur þá slökknaði aftur á gleðinni hjá mér þín vegna líka :)
Jæja litla flökkukelling velkomin heim og góða fert, góða ferð og góða ferð, já einsgott að hafa þetta nokkrum sinnum því þú ert alltaf á flakkinu og mín abbó :)

9:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ásgerður, ég ætla að vona að þetta hafi verið prentvilla hjá þér að þú ætlir kannski að sleppa þjóðhátíðinni... hvað myndi ég gera þá....hmmmm.......enginn þjóðhátíðarfundur uppí brekku fyrir þjóðhátíð, engar ógeðslega girnilegar kökukræsingar á föstudeginum...líst ekkert á þetta :o/

12:40 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home