dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

miðvikudagur, desember 15, 2004

Jólakósy

Jæja í gær smelltum við VK okkur í jóla-kósý. Hann gerði heil 5 stykki jólakort handa bekkjarfélögum. Á tæplega þremur tímum. Drengurinn vandaði sig svo þvílíkt. Svo sætur krúttið mitt. Ég bakaði smávegis af smákökum. Eina tegund sem ég bakaði síðast í Kaupmannahöfn árið 1993. Þegar ég var au-pair. Slumpaði eftir minni. Og viti menn þetta var bara alveg eins. Drengnum fannst þetta nú ekki gott en fullorðnum finnst þetta gott. Fór vel með Kronikkunni sem var endursýnd í gær.

Jæja meira síðar!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það er svo gaman að gera eitthvað svona með þessum krílum, þeim finnst það líka svo hryllilega gaman ef við nennum að leyfa þeim að hjálpa til. Mín er voða dugleg að kjafta á meðan ég er að gera eitthvað og þykist leyfa henni að hjálpa... hún kjaftar mig yfirleitt alveg í kaf þannig að ég geri bara einhverja vitleysu ;o)
Matta

11:32 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home