dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

fimmtudagur, apríl 01, 2004

hippar, latínudjass og hljóðklædd ljóðagerð

ja hérna hér. Hvað er ég að gera hér?
Ég fór á Hippaballið í Höllinni síðasta laugardag. Friður og ró þar. Mjög skemmtilegt ball og gott partí heima hjá mér áður. Gaman að sjá allt þetta fólk í rétta gallanum. Reyndar stundum aðeins of réttum göllum. Stundum átti maður erfitt með að þekkja fólk sem maður umgengst daglega. Sérstaklega fengu menn sem eru fátækir á hausnum eða hárlitlir, uppreisn æru. Urðu mun myndarlegri með kafloðnar hárkollur og gerviskegg. Gaman að því.
En þetta var frábært ball nema að það vantaði Andra Hugo alveg og ég tala nú ekki um Sóley systur hans...en það er nú bara indverskur draumur...álíka fjarlægur þ.e.a.s.

En það er nú það.

Annað kvöld ætla ég að fara í Akóges að hlusta á Latinjass af bestu gerð. Og ætla að bjóða litla djassgeggjaranum mínum með mér. Mikil spenna fyrir því...

Annars er svo sem ekki mikið að frétta. Ég fór í staðlotu í Listum í skólastarfi í KHÍ og performaði af mikilli innlifun, eða þannig. Flutti frumsamið hljóðklætt ljóð eftir sjálfa mig. Og gekk bara bærilega. Þetta tók á taugarnar fyrir fram en þvílikt athygliskikk sem kom á eftir.

Ég er að hugsa um að setja þetta ljóð á vefinn bara til að ergja ykkur sem lesið þetta og fá aðeins meira athyglistripp.

Þið verðið að ímynda ykkur hljóðklæðninguna: klaki sem brestur, klukkuspil, bjalla og fuglatíst...


Hvenær kemur vorið?

Klakann brestur brátt þol
til að bera þunga sólarinnar
brak
brestir
fuglasöngur
tíst tíst.

Regnboginn tekur á sprett
í
öldunni

Getur maður óskað sér í alvörunni?
Er nóg að sjá
regnbogann?

Má segja óskina?

Nei vina mín,
Haltu henni fyrir þig og þá mun hún rætast
Ef hún rætist ekki, sem hún gerir samt, getur þú verið viss um að vorið kemur að lokum.

Því það var óskin, ekki satt?



Jæja best að fara að sofa áður en maður fer að setja eitthvað ennþá persónulegra. Ef þið bara vissuð!!
Bless


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home