dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

föstudagur, janúar 18, 2008

Breska skólastúlkan...komin á kreik...

Komið þið sælir, ágætu lesendur. Gleðilegt ár!
Ég vel daginn í dag til að hefja skrif mín aftur eftir næstum fjögurra mánaða hlé. Þetta er góður dagur, hún Anna Lása, frænka mín, á 75 ára afmæli í dag. Þeir sem til mín þekkja persónulega, vita mætavel hver ástæðan fyrir blogg-hléinu er og það er svo sem ekki auðvelt að koma til baka. En...bloggið er hluti af hinni „venjulegu“ Ásu, sem ég er að reyna að finna í augnablikinu, þannig að ég ætla að brjóta ísinn í dag. Nýtt ár er hafið og ég vona svo sannarlega að það færi sjálfri mér og fjölskyldu minni, nú ásamt öllum öðrum auðvitað líka, gæfu og gleði. Ég þakka fjölskyldu og vinum fyrir ómetanlegan stuðning í gegnum áfallið sem fjölskyldan mín varð fyrir. Ég hef reyndar alltaf vitað að ég ætti yndislegt fólk að en ég fékk fullvissu um það allt saman núna. Ég vona að ég verði ykkur sami stuðningur þegar þið þurfið á mér að halda!
En snúum okkur nú að léttara hjali. Við VK komum aftur til UK á Þrettándanum og fengum mjög svo herramannslega fylgd frá flugvellinum heim til Helga og Palla á London Bridge. Minn yndislegi vinur, Matt, tók á móti okkur og hélt á töskunum fyrir okkur í gegnum neðanjarðarlestakerfi Lundúnaborgar. Ekki allir sem fá svona þjónustu. Dr.Helgi tók á móti okkur með myndarskap eins og venjulega. Fórum í hádegismat á enskum pöbb og svo í rómantíska gönguferð meðfram Themes ánni. VK var alveg að tapa sér yfir athygli tveggja karlmanna...og ég líka...heheh.. um kvöldið naut ég síðan snilldarhæfileika Helga í eldhúsinu...á meðan VK svaf eftir okkar langa ferðalag...fiðluleikarinn Martin var reyndar líka með okkur...enn einn sæti strákurinn...hehe..maður þarf nú athygli segðu...
Lendingin í Heronbank var lævi blandin en ekki svo slæm þó og það var virkilega gott að hitta skólafélagana og kennarana. Þetta er hátt í 30 manna hópur sem hefur staðið við bakið á mér sem ein heild. Fyrir það er ég óendanlega þakklát og það er ekki síst þeim að þakka að ég lét verða af því að koma til baka...Mohammed, frá Palestínu, kom t.d. fyrsta kvöldið til okkar í te...VK til mikillar gleði...en hann heldur að Mo sé á svipuðum aldri og hann...þó hann sé í reynd 31 árs. Finnsku vinir okkar tóku líka vel á móti okkur. Marjut var búin að fara í Tesco og versla það helsta fyrir okkur, þannig að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af því...þarf ég nokkuð að segja meira?
Veðrið hérna leikur við okkur...tjöllunum finnst þetta frekar dreadful...en þetta er satt að segja svipað og milt haust eða vor heima...þannig að ég kvarta ekki meðan við getum farið ferða okkar hjólandi eða gangandi.
Dagurinn í dag og helgin framundan er tileinkuð ritgerðunum mínum sem ég fékk frest til að skila. Ég tel mig vera að komast yfir athyglisbrestinn smám saman...en það er mikið átak...sést kannski best á því að ég vel einmitt þennan dag til þess að koma aftur í bloggheiminn..heheh
Jæja, ég held að þetta verði að duga í bili...Gullna gæsin kallar...og ég verð að vera dugleg... svo ég fái verðlaunin!
Lifið heil elskurnar mínar!

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Elsku besta Ása... æðislegt að þú sért komin á bloggið... ég hringi í þig um helgina.
Lovjú...
Matta

10:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin til baka elsku Ása mín!

Kv
Þorkell

5:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elskurnar
Gott að heyra að allt gengur vel.
Strax farin að sakna ykkar.
Verð fjótlega í bandi við ykkur.
Kossar og knus til ykkar.
Kveðja Berglind og co

2:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Ásgerður mín ég sakna ykkar svo mikið og erfitt að geta ekki tala við þig á hverjum degi um daginn og veginn.
Gott að þið séuð komin á rétt ról og allt gekk vel á heimleiðinni.

Ykkar vinkona Stefanía

12:40 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

bara að kvitta, gott að sjá nýtt blogg!! Bestu kveðjur, Nía frænka og CO.

10:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Elsku Ása. Gaman að sjá að all er að komast á rétt ról.Góður dagur að birja að blogga. :).
Ástar kveðjur frá Califoríu. Alli og Co.

5:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ elsku frænka:) Ji hvað ég er glöð að þú sért byrjuð að blogga aftur, gaman að fá að fylgjast með ykkur þarna í englandinu:) Hafið það hrikalega gott:) Knúúús

4:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

En gaman að sjá þig aftur í blogg heiminum elskan. Það er alltaf gott að vita að maður eigi góða að. Það hjálpar mér líka rosalega mikið að vita hvað hefur verið stutt við bakið á þér og VK, þú átt það svo skilið.
Heyrumst bráðum!
XOXO
Sóley

3:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl elsku frænka og velkominn aftur í netheima...ég er nú ansi latur að taka bloggrúntinn en lendi reglulega inni á síðunni hjá þér og það gleður mig að sjá að þú sért farin að blogga aftur...fylgist með úr fjarlægð og hlakka til að sjá ykkur mæðginin aftur næst þegar þið komið til Eyja. Gangi ykkur allt í haginn í stóra UK.

kærar kveðjur úr eyjunum
Baldvin frændi og co

10:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæhæ frænka gaman að finna bloggið þitt langði bara að kvitta og segja að mér þykkir vænt um þig farðu vel með þig og bið að heilsa valla kalla sorry stafsetninguna er með lesblindu

þín frænka írena :)

9:10 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home