dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Fermingardagurinn minn...

Hún Stebba skutla skoraði á mig að lýsa fermingardeginum mínum. Hálfgert klukk svona. Jæja best að verða við áskoruninni og segja ykkur frá mínum fermingardegi. Það vill einmitt svo skemmtilega til að núna í lok mars verða nákvæmlega tuttugu ár liðin frá þeim merka degi í mínu lífi. Já, ég veit að það er alveg ótrúlegt sko!

Ég man svo vel eftir því þegar fullorðið fólk var alltaf að spyrja hvort ég væri ekki spennt fyrir þessu. Mér fannst þetta svolítið ótrúlegt en vissi svo sem að það kæmi að þessu. Erna heitin frænka mín var sérlega áhugasöm um það hvernig mér þætti þetta og var mikið spekúlerað í hárgreiðslunni og fatnaðinum. Það var fljótlega ákveðið að Íris frænka sem er hárgreiðslukona myndi sjá um greiðsluna en förðun var ekki inni í myndinni enda var maður með eindæmum saklaus í öllu slíku. Maður fór í nokkrar prufuhárgreiðslur á Heiðarveginn til Írisar sem sá um þetta allt af stakri prýði.
Þrátt fyrir að hin illræmda “eighties” tíska hafi verið í algleymingi þá var ég merkilegt nokk ekki sérstaklega mikið að elta hana. Var alveg til í að hafa þetta frekar klassískt. En bíðið bara ég á eftir að lýsa fötunum. Þau voru geðveikt flott kjólföt sem voru þannig úr garði gerð að það var hægt að taka löfin af jakkanum, svona ef maður vildi nota hann sem mittisjakka seinna. Sem var gert nokkrum sinnum. Jæja fötin voru svört og svo var kjólfataskyrta og dökkbleikur mittislindi og slaufa. Ég legg ekki meira á ykkur. Hvað ætli það hafi verið að troða fermingarstúlkum í kallaföt?? Hún Jóhanna vinkona mín fermdist sko í appelsínugulum kjólfötum. Vá hvað mér fannst það eitthvað kúl. ; -)

Athöfnin var nokkuð hefðbundin og svo var haldin þreföld Reynistaðar-fermingarveisla í Alþýðuhúsinu. Eins og svo oft. Við vorum þrjú frændsystkin sem fermdumst þennan dag; Huginn Helga, Pétur Erlings og ég. Erna Þorleifs frænka fermdist reyndar líka þennan dag en var með veislu með Ingó Kristjáns frænda sínum hinum meginn frá. Veislan okkar var rosalega flott; hlaðborð og kransaterta og konfekt í eftirrétt.

Þetta var svaka stuð. Ég man hvað ég hlakkaði til að geta farið heim að skoða gjafirnar og telja peninginn og spjalla við Jóhönnu. Dagurinn eftir er sérlega góður í minningunni því að þá fórum við vinkonurnar niður í bæ og ég keypti mér plötu sem kallaðist Mozart superstar. Til að prófa græjurnar maður. Og maður hlustaði á Mozart í fermingargræjunum. Ótrúlegt nokk að það hafi ekki verið Duran Duran. En maður var náttúrulega nörd. Þetta var svo fallegur dagur og sólin skein og ég var svo ægilega hamingjusöm. Fannst ég soldið fullorðin og svo átti ég græjur og körfustól sem hún Imba Johnsen blessuð frænka mín gaf mér í fermingargjöf. Ég fékk líka langþráð klarinett sem reyndar liggur núna ónotað ofan í tösku og bíður þess að fá að láta ljós sitt skína. Ég man ekki hvað ég fékk mikinn pening en það var alveg hellingur. Mér fannst líka merkilegt hvað ég fékk mikið að lömpum og skartgripum. Svo þóttu mér skeytin frekar merkileg. Sat heillengi við að reyna að átta mig á öllum nöfnunum. Mér þótti æði að fá svona mörg skeyti. Man ekki hversu mörg en þau voru mörg.
Ég var ekki sérlega mikil efnishyggjumanneskja á þessum árum (ekki frekar en núna ha,ha) og það gladdi mig einstaklega mikið að fá athyglina sem fylgdi tímamótunum. Gjafirnar voru bara plús.

Altarisgangan er líka mjög minnisstæð þar sem ég og móðir mín ásamt ömmu gengum til altaris. Við fengum allar hláturskast sem átti rætur sínar að rekja til þess að mér svelgdist frekar illa á oblátunni. En það tókst alveg að bæla niður flissið og mig minnir að við höfum ekki orðið okkur til skammar.

Eins og Stebba skutla þá fór maður í myndatöku til hans Óskars heitins en það var ekki fyrr en daginn eftir. Maður ætti að skanna eins og eitt stykki og leyfa ykkur að sjá!! Viljið þið það kannski? Við sjáum til...

Jæja það var gaman að rifja upp fermingardaginn og vona ég að þið hafið haft gaman af. Ég ætla að skora á Möttu frænku að rifja sinn upp. Ég man ekki einu sinni eftir veislunni hennar en ég hlýt bara að hafa verið þar.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég brjálast ,,einsog sumir mundu segja,, yfir fermingarfötunu að hægt var að hneppa af hehehe en jú endilega skella inn einni 20 ára mynd og ég ætla líka að gera hið sama um helgina :)

12:06 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hahaha Ég brjálast líka.... úfff jæja ég skal nota kvöldið í kvöld til að rifja upp fermingjardaginn minn. Ferlega fyndin lýsingin hjá þér og ótrúlegt að þú skulir muna þetta svona flott... ég bíð spennt eftir myndinni.

2:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ji, ég man bara að ég var síðasta stelpan til að fermast í mínum árgangi......svo komu strákarnir á eftir og held ég að ég muni rétt að Svenni heitinn (man ekki hvers son hann er en pabbi hans er núna giftur Matthildi frænku) var síðastur að fermast. Man voðalega lítið eftir athöfninni sjálfri og enn minna af altarisgöngunni.
En ég man þegar við vorum að "læra" í kirkjunni (heitir það ekki að ganga til altaris?) þá var ég með lánaða bók frá Dísu Kjartans, og ég man að ein ónefnd stúlka var alveg ga-ga yfir því að Sóley littla ómerkilega stelpan, þekkti svo merka manneskju það vel að fá lánaða bókina hennar. Þetta var svona fyrsta upplifuninn að því að vita hvað það er gott að vera vel tengdur, ekki það að maður sé það neitt mikið í dag, en það var samt gaman að geta sagt við "vinsælu" stelpuna, já ég þekki hana sko mikið ;)
Ég var í grænni dragt, pilsi, ein af fáum sem var í pilis þetta árið (og kannski mörg fyrir og eftir, þetta var nú 80's dæmi, kommón), sem við (eða kannski bara mamma) keyptum á einhverri útsölu löngu fyrir fermingu.
Ég lét sko ekki klippa mig eftir fermingu eins og svo margar gerður (lét ekki gera það fyrr en um 3 árum síðar) en fékk mér permó í tilefni dagsins í staðinn :)
Ég fékk sko 7 heila lampa, held að fólk hafi haldið ég ég byggi í helli. Það var nýbúið að klára nýja herbergið mitt uppi svo að ég fékk stóla og kommóðu frá Kidda og Dúddu og Agli og Ernu og Co. sem var sett upp í herbergi þegar við vorum í kirkju. Fékk ekkert of mikinn pening....held að það hafi slefað í 20.000kr. Fékk leikjatölvu og far til USA frá M&P en man svo ekki mikið meira. Jú, eitthvað af skartgripum, hálsfesti og hringi.
Eins og þú þá fannst mér agalega gaman að fá skeitinn og hljóp til dyra þegar það var verið að bera þau út. En ég þurfti sko mikla hjálp frá pabba til þess að finna út frá hverjum þau voru, þekkti ekki 80% af þessu ;) En á þetta allt ennþá, situr í stórum konfekt kassa heima á Brekastígnum.
Læt Andra kannski bara skanna inn mynd af heirlegheitunum ;) og Ása póstar hana bara fyrir mig
Ég veit að það var enginn að byðja um langlokuna mína en hér er hún samt!
Bara gaman að þessu :Þ

8:51 e.h.  
Blogger Ásgerður said...

Sóley mín,
mig langaði einmitt að skora á þig en hélt einhvern veginn bara að þú nenntir því ekki. Takk fyrir "langlokuna". :-)
Ég skal pósta fermingarmynd, það væri geggjað. Ég leitaði að mynd hjá mömmu en hún virðist búin að týna myndinni. Svona er nú haldið upp á mann. Hah...En ég á nokkrar sem ég þarf bara að skanna.

10:48 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sóley mér fannst þetta skemmtileg lesning :)
Já Ása endilega grafa upp mynd en það er einmitt næst á dagskrá hjá mér líka og skanna herlegheitin inn á bloggið:)

11:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home