dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

föstudagur, desember 29, 2006

Ilmandi dömubindi...

Ég fór í búðina í dag til að kaupa ýmislegt til áramótanna. Ekki í frásögur færandi nema það að mig vantaði dömubindi og greip pakka af slíkum varningi. Kannaðist við framleiðandann en tiltekna tegund hef ég ekki prófað áður. Jæja, það er nokkuð langt síðan ég las frönsku í MS en ég hefði nú alveg getað skilið að þegar það stendur controle les odeurs, senteur fraiche...að þá er eitthvað í gangi. En allavega þá skildi ég þetta ekki fyrr en ég opnaði blessaðan pakkann og upp gaus þessi líka blómailmurinn...hehe...aldrei vitað annað eins...ætli maður fái ekki bara exem af þessu ilmefnaveseni?

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hahahahaha ILMDÖMUBILDI allt er nú til. úff sem betur fer hef ég ekki lent á þannig dóti.
Já velti þessu fyrir mér, frekar spes framleiðsla !!
Gleðilegt ár mín kæra og takk fyrir það gamla með og án ilmdömubinda ;)

11:35 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ómægod........

10:18 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hvernig væri að koma með ilmandi blogg núna í tilefni ársins 2007 ? :)

11:12 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er næstum því farin að finna lyktina af ilmdömubindunum við það eitt að opna síðuna hehe
Tölvan þín er komin í lag ,,blikk blikk,, svo blogg kona góða

11:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home