dægurflugur og loftkastalar

dramadrottningarinnar ævintýragjörnu

laugardagur, ágúst 12, 2006

Dagurinn minn...

Hann er runninn upp, dagurinn sem ég á alltaf svolítið erfitt með. 12. ágúst. Afmælisdagurinn minn. Síðan ég var barn var sjaldnast hægt að halda upp á afmælið mitt vegna þess að flestir voru í burtu í sumarleyfi. Enn er það sama uppi á teningnum. Mjög fáir í bænum. Þannig að oftast nær er ekki veisla hjá mér. Frænka mín hringdi í mig í dag, til að óska mér til hamingju. Hún spurði hvað ég væri að gera í tilefni dagsins. Ég sagði henni að ég væri að skúra. Nú, er það veislan? Það er nefnilega þannig að prinsinn minn á afmæli á morgun og þá bjóðum við í ömmukaffi klukkan þrjú. Og þá skal allt vera spikk og span, ekki satt? Annars er þetta fínt. Ég öfunda samt alltaf þá sem eiga afmæli á “réttum” árstíma. Jólin eru eiginlega líka alveg glötuð en janúar fram í svona apríl er fínt. Og svo haustið auðvitað líka. En svona til að bæta okkur mæðginunum upp veisluleysið í ágúst þá höldum við upp á afmælið hans í kringum Hrekkjavökuna. Og það hefur bara heppnast fínt. Hehehe.

Annars er bara fátt að frétta. Maður er alveg skriðinn saman eftir Þjóðhátíðina en er að fara á límingunum yfir kennslustarfinu tilvonandi. Annars sagði sonur minn að ég hefði örugglega frábæra hæfileika til að vinna sem kennari því að ég væri svo rosalega “agasöm” við hann. (þetta var daginn eftir að ég þurfti að reka hann með harðri hendi í rúmið klukkan eitt eftir miðnætti, honum til sárrar gremju!!) hehe
Jæja, ég hef fátt að segja í bili...eins og sést á þessu bloggi...best að drífa sig í að baka smotterí fyrir morgundaginn!! Allir velkomnir!

Bless í bili og lifið heil!

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn elsku Ása mín..... og jú rétt hjá þér... þetta er tími sumarleyfanna, við mæðgur fórum einmitt upp á land að morgni afmælisdagsins þíns.... sendi þér í staðinn þúsund kossa.

Kv. Matta

12:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið Ása mín... og takk takk takk fyrir frábæra Þjóðhátíð.. er strax farin að telja niður í þá næstu!!! verð þá líklega að koma með stútkönnu eins og litlu börnin (matta segir það a.m.k.!!)

þar til síðar.

12:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilegar hamingjuóskir með daginn elskan!
Vonandi hafið þið haft það gott í 'teitinu' sem þú hélst þér ;)
Vonast til að geta verið með þér og kannski smakkað á Cosmoinu sem ég sendi í denn...á næsta ári :)
Heyrumst fljótlega!
Sóley

4:06 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið mín kæra og takk fyrir mig og Jón, svo við munum það bara næst að vera ekkert að asnast á pöbbann heldur halda sig heima á tjúttinu og trallinu því þar ræður maður látunum í tónlistinni :)

10:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið.... fyrir 5 dögum! Nú þarf piparjónkufélagið að fara að bretta upp ermarnar og gera eitthvað í sínum málum, þ.e.a.s. í sambandi við að hittast, en ekki það að vera piparjónkur. Veturinn er rétti tíminn fyrir kósý stundir með kertaljós og nóg af irish coffee og við skulum ekki láta okkar eftir liggja með það í vetur. Heyrumst fljótlega!

12:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Betra seint en aldrei :-s Til hamingju með afmælið elsku Ása mín og afsakið hve seint þetta berst.

8:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hættir konan bara að blogga þegar eitt ár færðist í viðbót á hana ???
Bank bank Ása koma svo blogg blogg og segðu okkur frá kennslukonunni mikilu :)

1:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ása !!!
Það er kominn september.....

12:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Dagurinn þinn...

er orðinn mjög langur!!!

5:40 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home