Bókaklukk
Matta frænka mín klukkaði mig enn einu sinni. Núna er það bókaklukk og hef ég gaman af að bregðast við því. Verst að þurfa að velja en eins og sést þá á ég mjög erfitt með það stundum...*hehe*
1. Which book has made the greatest impact on you? Either as a good read or as a "aha" experience?
Ég verð að vera sammála henni Möttu frænku í þessu. Það er bara ekki hægt að taka eina bók út. En maður getur talið upp nokkrar. Ég las allar Enid Blyton bækurnar þegar ég var krakki. Sennilega eiga þær að einhverju leiti sök á því hvað ég er gamaldags. Ég komst líka í gamlar bækur frá henni ömmu minni og eru þar tvær sem stóðu upp úr. Önnur hét Tataratelpan og hún var svo hjartnæm að ég held að ég hafi fellt tár yfir henni 8-9 ára gömul. Ég man ekki nákvæmlega nafnið á hinni en hún var um ástralska fjölskyldu. Í Glaumbæ eitthvað. Mörg systkini og mikið að gerast. Líklega fundið mig í henni þar sem ég ólst upp sem einkabarn (á reyndar hálfsystkini sem ólust upp annars staðar).
Á unglingsárunum las ég Ómótstæðilegan léttleika tilverunnar eftir Milan Kundera og svo Ilminn e. Patrick Süskind. Þær höfðu áhrif.
Salka Valka Halldórs Laxness heillaði mig upp úr skónum ásamt Heimsljósi, Barni náttúrunnar og fleirum.
Skemmtilegust bækur sem ég hef lesið eru samt líklega Doppóttur svertingi og hvítt skítapakk og Steiktir grænir tómatar e. Annie Flagg. Ég hreinlega skellti upp úr upphátt yfir þeim.
Þegar ég kynntist honum Sigga Kalla þá varð ekki hjá því komist að læra að meta Ísfólkið og fleiri í þeim dúrnum. Gleymdi mér algerlega í þeim seríum. Bjó samt ekki nógu lengi með honum til að læra að meta vísindaskáldsögurnar hans. *hehe*
Jæja þetta eru svona þær helstu sem koma upp í huga minn í kvöld. Vá ekki má gleyma Dagbók Önnu Frank. Hún hafði svakaleg áhrif á mig, sérstaklega þar sem ég fór í húsið hennar í Amsterdam þegar ég var 11 ára. Og síðast en ekki síst; Húsið á sléttunni. Ég las sögurnar um Ingalls fjölskylduna af mikilli áfergju þegar ég var svona á að giska 10 ára.
2. Which genre do you read most? Novels, crime-stories, biographies, poetry or something else?
Ég hef rosalega gaman af að lesa svona bolsévískar heimspekiskáldsögur þar sem söguþráðurinn samvefst raunverulegum atburðum mannkynssögunnar. Persónurnar eru skáldaðar en atburðir eiga sér stað á raunverulegum stöðum og oftar en ekki á sögufrægum tímabilum sbr. Óbærilegan léttleika tilverunnar og Bækur Jean Auel um Indíána í Ameríku. Líklega finnst mér skemmtilegast að lesa sögur sem segja sögur fólks sem býr við pólitíska og/eða samfélagslega undirokun, fólk sem elskar af öllu hjarta, er fátækt en nógu hugrakkt til að standa á móti straumnum.
3. What was the last book you read?
Ég er með tvær í takinu í augnablikinu; Ást og skuggar e. Isabel Allende og Vetrarborgina e. Arnald. Ást og skuggar er einmitt í stílnum sem ég lýsti áðan en Vetrarborgin er eiginlega of sorgleg til að ég geti lesið lengi í henni í einu. Er búin að vera rosalega lengi með hana. En sú síðasta sem ég kláraði var Falin myndavél; dönsk spæjarasaga sem er vægast sagt mjög spes.
4. Which sex are you?
Sé ekki alveg tilganginn með þessari spurningu en ég er stelpa en soldið eins og Matta frænka, pínu strákastelpa. *hehe*
Ég klukka Kela og hana Sóley sem á ekki neitt blogg en má nota kommentaskjóðuna mína til að segja okkur frá sínum bókalestri.

5 Comments:
Forvitnilegt hjá þér... ekki alveg sami stíll og ég en samt tvinnast svona aðeins saman. Spurning 4 er einmitt mjög mikilvæg í þessu...hehehehehehe
Hæ frænka!
Sammála ykkur með Ísfólkið, las alla seríuna á mettíma, gat bara ekki lagt bækurnar frá mér. En ertu ekki búin með bækurnar eftir Dan Brown, þær eru snilld?
Ég dýrka Arnald en þori samt ekki að byrja á Vetrarborginni, óttast að ég verði fyrir vonbrigðum:)
Ég las Da Vinci lykilinn og Deception Point (Blekkingarleikur?) síðasta sumar. Fannst þær æði. Hef líka lesið Bettý og Kleifarvatn e. Arnald en Vetrarborgin er ekki alveg eins grípandi fyrir mig.
Gaman að heyra í þér Hjördís mín!
Takk fyrir klukkið. Ég skal svara, með gleði!
Hahaha! Vááá... Man eftir Ísfólkinu hér í denn. Það blívaði. ;)
Johnny
Skrifa ummæli
<< Home